Karastaflari fyrir full kör

Karastaflari fyrir 660 og 460 L plastkör. Getur staflað upp eða tekið niður stæður. Afkastar allt að 80 körum á klst.

Karastaflari fyrir full kör

Karastaflari fyrir 660 og 460 L plastkör (botnmál 105x124cm). Tækið er hannað með það í huga að vera hluti af karakerfi. Getur staflað upp eða tekið niður stæður. Vinnur stæðuna neðan frá, lyftir öllu nema neðsta karinu og hleypir því áfram í afstöflun og í uppstöflun þá lyftir tækið upp karinu/körunum og bætir við kari undir. Staflarinn afkastar allt að 80 körum á klst. Hámarks lyftigeta er 750kg.

Karastaflarinn er alsjálfvirkur, með góð afköst og fína skilvirkni. Lágur viðhaldskostnaður ásamt vinnusparnaði og betri ending á körunum vegna betri meðhöndlunar, eru lykilatriði í hönnun og smíði vélarinnar. Flestir íhlutir tækisins eru úr AISI 304 ryðfríu stáli og öðrum efnum sem eru samþykkt við meðhöndlun á ílátum fyrir matvælaiðnað.

Helstu kostir

  • Alsjálfvirk vinna
  • Góð afköst og áreiðanleiki
  • Lítil þörf fyrir viðhald
  • Vinnusparnaður
  • Efni samþykkt fyrir matvælaiðnað
  • AISI 304 ryðfrítt stál

Tæknilegar upplýsingar

Sjá nákvæmar upplýsingar um stærðir, þyngd og afþörf í tæknilýsingu vörunnar.

Efni

Allir íhlutir eru framleiddir úr AISI 304 ryðfríu stáli og öðrum efnum sem eru samþykkt fyrir matvælaiðnað.

Notkun

Hentar vel fyrir fiskvinnslu og aðra matvælaiðnað sem krefst skilvirkrar meðhöndlunar á körum sem hluti af sjálfvirku kerfi.

Niðurhal

Datasheet.pdf

Tæknilegar upplýsingar og nánar um vöruna

Óska eftir upplýsingum

Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar um þessa vöru eða óska eftir tilboði.

Óska eftir tilboði Hringja: +354 456 3700