Karaband í karalyftu

Karaband fyrir full 660 og 460 L plastkör, byggt til að þola eina stæðu af þannig körum.

Karaband í karalyftu

Karabandið er hannað fyrir full 660 og 460 L plastkör með botnmálið 105x124cm og er byggt til að þola eina stæðu af þannig körum. Tækið er hannað með það í huga að vera hluti af stærra karakerfi. Bandið tekur á móti stæðu af fullum körum og staðsetur það á réttann stað fyrir fullkarastaflarann og flytur svo kar úr honum og í karalyftu til tæmingar.

Karabandið sem hluti af kerfi, er alsjálfvirkt. Lágur viðhaldskostnaður ásamt vinnusparnaði og betri ending á körunum vegna betri meðhöndlunar, eru lykilatriði í hönnun og smíði tækisins. Flestir íhlutir tækisins eru úr AISI 304 ryðfríu stáli og öðrum efnum sem eru samþykkt við meðhöndlun á ílátum fyrir matvælaiðnað.

Helstu kostir

  • Alsjálfvirk vinna
  • Góð afköst og áreiðanleiki
  • Lítil þörf fyrir viðhald
  • Vinnusparnaður
  • Efni samþykkt fyrir matvælaiðnað
  • AISI 304 ryðfrítt stál

Tæknilegar upplýsingar

Sjá nákvæmar upplýsingar um stærðir, þyngd og afþörf í tæknilýsingu vörunnar.

Efni

Allir íhlutir eru framleiddir úr AISI 304 ryðfríu stáli og öðrum efnum sem eru samþykkt fyrir matvælaiðnað.

Notkun

Hentar vel fyrir fiskvinnslu og aðra matvælaiðnað sem krefst skilvirkrar meðhöndlunar á körum sem hluti af sjálfvirku kerfi.

Niðurhal

Datasheet.pdf

Tæknilegar upplýsingar og nánar um vöruna

Óska eftir upplýsingum

Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar um þessa vöru eða óska eftir tilboði.

Óska eftir tilboði Hringja: +354 456 3700