Færiband fyrir tómar karastæður

Karaband fyrir 660 og 460 L plastkör, byggt til að þola stæður af þannig körum. Getur geymt allt að 24 kör.

Færiband fyrir tómar karastæður

Karabandið er hannað fyrir 660 og 460 L plastkör með botnmálið 105x124cm og er byggt til að þola stæður af þannig körum. Tækið er hannað með það í huga að vera hluti af stærra karakerfi. Mismunandi eftir lengd tækisins, sem fer eftir óskum viðskiptavinarins og hversu margar hæðir af körum eru á bandinu, þá er misjafnt hversu mikið af körum bandið getur geymt í einu. 6m langt band eins og þetta upplýsingablað er um, getur verið með 4 kör á lengdina og allt að 6 kör á hæðina, eða allt að 24 kör.

Karabandið sem hluti af kerfi, er alsjálfvirkt. Lágur viðhaldskostnaður ásamt vinnusparnaði og lengri líftíma á körunum vegna betri meðhöndlunar, eru lykilatriði í hönnun og smíði tækisins. Flestir íhlutir tækisins eru úr AISI 304 ryðfríu stáli og öðrum efnum sem eru samþykkt við meðhöndlun á ílátum fyrir matvælaiðnað.

Helstu kostir

  • Alsjálfvirk vinna
  • Góð afköst og áreiðanleiki
  • Lítil þörf fyrir viðhald
  • Vinnusparnaður
  • Efni samþykkt fyrir matvælaiðnað
  • AISI 304 ryðfrítt stál

Tæknilegar upplýsingar

Sjá nákvæmar upplýsingar um stærðir, þyngd og afþörf í tæknilýsingu vörunnar.

Efni

Allir íhlutir eru framleiddir úr AISI 304 ryðfríu stáli og öðrum efnum sem eru samþykkt fyrir matvælaiðnað.

Notkun

Hentar vel fyrir fiskvinnslu og aðra matvælaiðnað sem krefst skilvirkrar meðhöndlunar á körum sem hluti af sjálfvirku kerfi.

Niðurhal

Datasheet.pdf

Tæknilegar upplýsingar og nánar um vöruna

Óska eftir upplýsingum

Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar um þessa vöru eða óska eftir tilboði.

Óska eftir tilboði Hringja: +354 456 3700